Karellen
news

10 ár síðan við fluttum í nýtt húsnæði.

25. 02. 2019

Þann 24. febrúar 2009 flutti leikskólinn í nýtt húsnæði og héldum við upp á það í dag. Við buðum Hvanneyrardeild til okkar og var mikið fjör, við sungum og lékum okkur saman. Hvanneyrardeild gaf okkur mjög skemmtilegt spil að gjöf og á það eftir að nýtast mjög vel. Við fengum gesti frá LBHÍ þær Rósa Björk og Ólöf Ósk gáfu öllum endurskinsmerki og auðvitað fengum við okkur köku, mjólk og ávexti í tilefni dagsins. Vel heppnaður dagur og erum við mjög þakklát fyrir heimsóknirnar, gjafir og fallega húsið okkar.

© 2016 - 2024 Karellen