Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins í dag. Þetta er í ellefta skipti sem haldið er upp á daginn en 6. febrúar er merkilegur dagur í leikskólasögu þjóðarinnar því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Tilgangur Dags leikskólans er að vekja athygli á hlutverki leikskóla og starfi leikskólakennara.
Við buðum foreldrum í morgunkaffi til okkar og gaman var að sjá hvað margir komu og áttum við notalega stund saman. Elstu börnin sungu tvö lög fyrir okkur.