Karellen
news

Upphaf skólaársins

20. 08. 2018

Nú nálgast haustið og flestir komnir til baka úr sumarfríum. Starfið á Hulduheimum er smátt og smátt að komast í fastar skorður en töluverðar breytingar hafa orðið þetta haustið.

Börn fædd 2016 fluttu öll yfir á Álfheima í síðustu viku og eru þrjú börn í aðlögun þessa dagana. Það eru þau Jóhanna Ósk, Embla Karen og Gizur og bjóðum við þau og foreldra þeirra velkomin til okkar í Andabæjar fjölskylduna.

Þetta haustið verður deildin því aldurshrein með börn fædd 2017.

Nýr starfsmaður hóf störf hjá okkur á Hulduheimum eftir sumarfrí og heitir hún Halldóra. Við bjóðum hana einnig velkomna til okkar.

Í vetur verða fjórir starfsmenn á Hulduheimum líkt og síðasta vetur en það eru Alla (deildarstjóri), Sif, Hulda og Halldóra.


Við hlökkum til vetrarins með ykkur og vonum að hann verði okkur öllum ánægjulegur.


Kveðja frá starfsfólki Hulduheima.

© 2016 - 2024 Karellen