Karellen
news

Dagur leikskólans 2019

06. 02. 2019

Í dag var haldið upp á dag leikskólans víða um land. Í Andabæ var boðið í morgunkaffi, þar mættu foreldrar, ömmur og afar og frænkur og frændur. Boðið var uppá heimabakaðar bollur og kaffisopa. Vel var mætt og mikil og skemmtileg stemming myndaðist, foreldrar stoppuðu í spjall og leik.

Goðheimaleiðtogar höfðu sett upp myndlistarsýningu á ganginn og vakti hún mikla lukku.

Mömmur kunna líka að kubba:) turninn endaði í 175cm


© 2016 - 2024 Karellen