Karellen


Heilsustefnan

Andabær varð heilsuleikskóli þann 11.desember 2013 og tilheyrir skólum sem vinna eftir heilsustefnu Samtaka heilsuleikskóla. Markmið heilsustefnunnar er að stuðla að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik. Öll börn ættu að alast upp við það að læra að virða heilsu sína og annarra sem ómetanleg verðmæti og grundvöll fyrir fullnægjandi lífi. Í heilsuleikskóla er heilsuefling höfð að leiðarljósi í einu og öllu. Markmið heilsustefnunnar er að venja börn strax í barnæsku við heilbrigða lífshætti með það í huga að þeir verði hluti af lífsstíl þeirra til framtíðar. Áhersluþættir heilsuleikskóla geta verið mismunandi eftir leikskólum en góð næring, góð hreyfing og listsköpun skal ávallt vera aðalsmerki þeirra. Þetta fellur vel að verkefninu Leiðtoginn í mér þar sem venja 7 er heilbrigð sál í hraustum líkama.

Í Andabæ fær hvert barn Heilsubók barnsins sem er gæðamatskvarði heilsuleikskóla og segir til um hvort settum markmiðum heilsustefnunnar er náð. Í þá bók eru skráðar ýmsar upplýsingar um barnið svo sem hæð og þyngd, heilsufar, fjarveru vegna veikinda, næring og svefn, leikur, félagsleg færni/lífsleikni, gróf- og fínhreyfigeta og þróun myndsköpunar. Öll börn í Andabæ fara a.m.k. einu sinni í viku í skipulagða hreyfistund í sal ásamt því að fara í útiveru helst tvisvar á dag. Einnig er hugað að næringaríkum mat og stuðst er við matseðla frá skólar.is.

1. Næring

– borða hollan og næringarríkan mat

– fjalla um mikilvægi fæðuhringsins

– börnin verði meðvituð um hollustu og óhollustu matar

– matarhefðir verði í hávegum hafðar

2. Hreyfing

– auka vitneskju um líkamann

– styrkja sjálfsmynd

– stuðla að betri hreyfifærni

– auðvelda samskipti

– læra hugtök

3. Listsköpun

– örva sköpunargleði

– auka hugmyndaflug

– kynnast mismunandi efniviði og handfjatla hann

– skynja fegurð í umhverfinu

http://heilsustefnan.is/


© 2016 - 2024 Karellen