Karellen
news

Gjöf frá Kvenfélaginu 19.júní

27. 06. 2018

Kvenfélagið 19. júní færði okkur veglega gjöf en það var ljósaborð, kubbar, stafir og ýmislegt sem hægt er að vinna með því. Þetta er frábær viðbót til að efla vísindastarfið hjá okkur og endalausir möguleikar að bæta við þessa flottu gjöf. Stjórn félagsins kom í heimsókn í morgun þær Rósa, Dagný og Ragnhildur og sýndu krakkarnir þeim ýmsa möguleika við vinnu á ljósaborðinu. Við þökkum kærlega fyrir þessa flottu gjöf.

© 2016 - 2024 Karellen