Karellen
news

Við sköpum okkar eigin hamingju - ÞORIR ÞÚ?

01. 03. 2019

VIÐ SKÖPUM OKKAR EIGIN HAMNINGJU! ÞORIR ÞÚ??

Ertu til í smá áskorun? Kvartlausan mars!

Starfsfólk Andabæjar ætla að taka kvartlausan mars og er þetta í þriðja sinn sem kvartlaus mánuður er tekinn í Andabæ. Áskorunin felur í sér að hætta að kvarta og baktala. Í upphafi verkefnisins var haft samband við Kvartlaus.is og athugað hvort við mættum nota þeirra efni og tengja það við okkar starf hér í Andabæ. Það var vel tekið í það að þeirra hálfu og megum við nota efnið eins og við viljum. Þar sem við búum í heilsueflandi samfélagi og leikskólinn þátttakandi í verkefninu Leiðtoginn í mér þar sem hver og einn ber ábyrgð að eigin hamingju, er tilvalið að koma með áskorun til starfsmanna. Við vorum svo heppin að verða okkur úti um armbönd þar sem á stendur Jákvæð samskipti en UMFÍ útvegaði okkur þau með aðstoð UMSB og færum við þeim okkar bestu þakkir.

Nú langar okkur að ná til samfélagsins og hvetjum við alla að taka kvartlausan mars.

Það sem áskorunin felur í sér er:

  • 1.Fáðu þér armband sem minnir á áskorunina, því auðvelt er að sofna og gleyma sér. (hægt er að vera með teygjuarmband eða póstteygju eða eitthvað sem minnir á verkefnið)
  • 2.Ekki kvarta
  • 3.Ekki setja útá / gagnrýna neikvætt (því það er í rauninni kvörtun)
  • 4. Áskorun um að kvarta ekki í 11 daga samfleytt

Þegar maður klikkar þá setur maður armbandið strax á hina hendina og byrjar að telja uppá nýtt.

Hvað er kvörtun? Öll neikvæð komment í kvörtunartón.

Baktal er þegar talað er illa um einhvern eða á neikvæðum nótum.

Hvað er ekki kvörtun? Ef þú kemur erindinu kurteisislega frá þér við manneskjuna sem málið varðar.

Hvað er ekki baktal? Þegar þú talar um aðra á jákvæðum nótum og myndir hiklaust segja þetta eins beint við aðilann sem þú talar um. Það tekur fólk nokkuð langan tíma að ná 11 dögum samfleytt. Talað er um nokkur stig í ferlinu og fyrsta stigið er að verða meðvitaður um þegar maður er að kvarta. Endilega reyndu að fá einhvern til að taka slaginn með þér en forðastu að verða kvart-lögga, þ.e. sífellt að benda öðrum á þegar þeir kvarta. Tilgangurinn er að átta sig sjálfur á því hvenær maður kvartar og því algjörlega undir manneskjunni sjálfri komið.

Vertu með í kvartlausum Mars!!

Ekki gefast upp ! Þetta er langhlaup! Við sköpum okkar eigin hamingju!

Vertu með á Facebook í grúbbunni sem heitir Kvartlaus.is

© 2016 - 2024 Karellen